UM OKKUR
Hvetjandi
umhverfi
Um Skúrina
Skúrin ehf. er samvinnurými og nýsköpunar- og samfélagsmiðstöð á Flateyri sem stofnað var til að frumkvæði einstaklinga og fyrirtækja.
Skúrin hefur það að markmiði að leiða saman og miðla þekkingu til frumkvöðla og atvinnurekenda á Flateyri með það að leiðarljósi að styrkja stoðir og auka fjölbreytni í atvinnulífi á Flateyri og stuðla að jákvæðri samfélagsþróun.
Nafnið
Það er mjög vestfirskt að kvenkenna skúrina. Hún skúrin.
Nafnið vísar til atvinnusögu Flateyrar en orðið er vestfirskt, skúr í kvenkyni s.s. beitningaskúr. Skráð dæmi um þessa orðmynd eru þó einungis tvö, úr ársriti Ísfirðinga frá 1960 og í grein eftir Skúla Thoroddsen í Þjóðviljanum gamla frá þeim tíma sem hann var sýslumaður Ísafjarðarsýslu skömmu eftir aldamótin 1900.
Skúrin og sú aðstaða sem er hér, er algjör "game changer" fyrir Flateyri! Að mæta í vinnuna á hverjum degi og hitti fyrir orkumikið og skapandi fólk eru forréttindi á svona lítlum stað. Svo er nú ekki verra að það tekur mig 5 mínutur að labba að landsins flottustu fjallaskíðaleið í Skollahvilft.
Helena Jónsdóttir
Stofnandi og framkvæmdarstjóri - MentalUm leið og ég kom fyrst út úr göngunum í Önundarfirði varð ég gjörsamlega heilluð. Óspillt fegurðin, hafið, lognið og fólkið gerir Flateyri að skapandi og töfrandi til að dvelja á í leik og starfi.
Jean Larson
ListakonaVinnuaðstaða í Skúrinni er um 3x ódýrari en sambærilegt húsnæði í Reykjavík. Hér er stutt í alla útivist og gott næði til að vinna. Svo er fegurðinni ekki spillt af eintómri bílaumferð.
Kári Harðarson
Kerfisfræðingur í sjálfvirkum hugbúnaðarprófunum - CyrenÞað besta við Skúrina er hvað aðstaðan er þægileg. Það að eiga möguleika á samtölum og stuðningi frá ólíkum fagaðilum er frábært. Og ef ég vil halda Zoom fund á kajak inni í firði er ég innan við fimm mínútur að gera mig kláran.
Juraj Hubinák
Eigandi og framkvæmdarstjóri - Hnappurinn Markaðsráðgjöf